Bókasafnið
25. árg. 2001
Efni blaðsins

Að flytja fjall
Erla Kristín Jónasdóttir
Ingibjörg Rögnvaldsdóttir

Upplýsingalæsi
Ingibjörg Sverrisdóttir

Rafrænar bækur
Hrafnhildur Hreinsdóttir

Landskerfi bókasafna
Dögg Hringsdóttir
Elísabet Halldórsdóttir
Sigrún Hauksdóttir

Rafrænt rannsóknarbókasafn
Sigrún Klara Hannesdóttir

Flutningur bókasafns Þjóðminjasafnsins
Gróa Finnsdóttir

Tvö ljóð
Sindri Freysson

Um aðgang bókasafna, stofnana og einstaklinga að erlendum og innlendum gagnasöfnum
Sólveig Þorsteinsdóttir

Landsaðgangur að rafrænum tímaritum
Erna G. Árnadóttir

Slóvenía sótt heim
Guðrún Karlsdóttir

Bækur og líf

Lestur

Fleyg orð um bækur


© Bókasafnið 2001 http://www.bokasafnid.is/25arg/

Frá ritstjóra

Um þessar mundir lifum við mikil tímamót í íslenskum bókasafnamálum. Ekki aðeins höfum við stigið fyrstu skrefin inn í nýja öld heldur sjáum við nú einhver stærstu samvinnuverkefni í allri sögu starfsvettvangs okkar verða að veruleika.

Fyrst skal nefna samninga um landsaðgang að fjölda gagnagrunna á breiðu fræðasviði. Fyrir þau yngstu í stéttinni sem alist hafa upp með Internetið á skrifborðinu virðist þetta kannski ekki vera neitt tiltökumál, svipað því að sækja sér margvísleg gögn með aðstoð leitarvéla. En við sem munum fyrirhöfnina og kostnaðinn við að fá aðgang að fyrstu tölvuvæddu gagnagrunnunum í kringum 1980 finnst mörgum sem við séum að upplifa kraftaverk.

Ekki er síður markvert að nú hillir undir að loksins takist að sameina íslensk bókasöfn í eitt bókasafnskerfi og eina samskrá. Sameining af svipuðu tagi var reynd áður fyrir rúmum áratug en tókst þá ekki af ýmsu ástæðum, ekki síst vegna þess að tæknin til netsamskipta var enn tiltölulega veikburða og kostnaðurinn ofviða flestum smærri bókasöfnum. En nú hefur orðið bylting í þessum efnum og akreinunum á upplýsingahraðbrautinni fjölgar sífellt og "vegatollarnir" lækka.

Bæði stýrast þessi miklu verkefni af sýn um aðgengi allra landsmanna að þeim upplýsingum sem þeim eru nauðsynlegar til að geta sinnt störfum sínum og rannsóknum, þroskast og menntast. Efni blaðsins ber merki þessa því að megináherslan er á umfjöllun um rafræn gögn og aðgengi að rafrænum upplýsingum.

Undirrituð stýrir nú útgáfu þessa blaðs í fyrsta skipti. Það er vissulega erfitt að feta í fótspor Áslaugar Agnarsdóttur sem stýrði fjórum síðustu blöðum af miklum myndarskap en ég hef reynt að gera mitt besta. Kann ég Áslaugu einlægar þakkir fyrir störf hennar og góðar ráðleggingar.

Ég vil loks þakka höfundum efnis, samstarfskonum mínum í ritnefnd og öðrum sem hafa lagt hönd á plóg fyrir þeirra framlag til blaðsins.

Dögg Hringsdóttir

Ritnefnd/Editorial board:
Dögg Hringsdóttir, ritstjóri/editor
Hadda Þorsteinsdóttir, gjaldkeri
Eva Sóley Sigurðardóttir, ritari
Kristín Ósk Hlynsdóttir, umsjón með netútgáfu
Gróa Finnsdóttir, meðstjórnandi

Kápumynd - 58 Kb